Íslandsmót

Það fór eins og raunar var búist við, Valsmenn yrðu Skagamönnum þungir í skauti, enda hefur sú orðið raunin á undanförnum árum. Valsmenn fóru heim með dýrmætt stig frá Akranesi eftir að hafa náð jafntefli í miklum baráttuleik og að mörgu leyti skemmtilegum, vel leiknum og spennandi. Þetta geta þeir fyrst og fremst þakkað markverði sínum, Sigurði Dagssyni, sem sýndi frábæra markvörslu, sérstaklega í síðari hálfleik. Það var margt um manninn á áhorfendapöllunum þegar leikurinn fór fram, því auk heimamanna, sem ekki létu á sér standa kom fjöldi fólks frá Reykjavík með Akraborginni og komust víst færri en vildu. Talið var að fjöldinn hafi verið um 2.500 manns á vellinum sem þótti mjög góð aðsókn.
Leikurinn hófst í fegursta veðri, en um miðjan fyrri hálfleik fór að rigna, en nokkuð stytti upp er sá síðari hófst. Við þetta spylltist völlurinm nokkuð, varð þungur og háll og áttu markverðirnir sérstaklega erfitt með að fóta sig. Það var greinilegur taugaóstyrkur hjá liðsmönnum beggja liða í byrjun leiksins, enda mikið í húfi, þar sem stigiin voru báðum liðum dýrmæt. Skagamenn eygja bikarinn, sem nú er geymdur í Keflavík, en Valsmenn ekki alveg lausir úr fallhættunni. Leiknum lauk með jafntefli og má segja, að eftir atvikum séu það sanngjörn úrslit, þó Skagamenn hafi óneitanlega verið nær því að sigra, ef um slíkt er hægt að tala.
Bikarkeppni KSÍ
Evrópukeppni
Litla Bikarkeppnin
Lokastaðan 1970
FÉLAG | L | U | J | T | MÖRK | STIG | |
---|---|---|---|---|---|---|---|
ÍA | 14 | 8 | 4 | 2 | 24-15 | 20 | |
Fram | 14 | 8 | 0 | 6 | 28-19 | 16 | |
Keflavík | 14 | 7 | 2 | 5 | 18-15 | 16 | |
KR | 14 | 5 | 4 | 5 | 18-16 | 14 | |
Valur | 14 | 5 | 4 | 5 | 23-24 | 14 | |
ÍBA | 14 | 4 | 5 | 5 | 32-30 | 13 | |
ÍBV | 14 | 6 | 1 | 7 | 20-25 | 13 | |
Víkingur R. | 14 | 3 | 0 | 11 | 18-37 | 6 |